katalina.bloggar.is
Góður dagur, í dag.Katrín Líney Jónsdóttir
Þá er blogg meistarinn loksins að skrifa.Kjólinn, kjólinn, kjóllinn. Hann er kominn og er mjög fallegur og smell passar. Mar er nú svolítið smeikur við að kaupa svona af ebay en kjólinn er æði. Þá er bara næsta mál á dagskrá. Velja daginn.
Það er búið að vera brjálað að gera hjá okkur og mar þokkalega þreyttur en alltaf gaman. Ég fór í berjamó ein í síðustu viku og upplifði eitt fyndnasta augnablik mitt þar he hehe. Var ein að ganga og skoða umhverfið með berjafötuna(tóma) í hendinni og áður en ég vissi af þá lá ég í lautu.
Ég ætla að eiga frábæran dag í dag. Gera mig sæta og draga þennan sem liggur sofandi við hliðina á mér í eitthvert ævintýri á eftir. Helgi er hjá sínum besta vini og við getum því kannski gert eitthvað sniðugt í dag. Ekki seinna að vænna að eiga svoleiðis dag þar sem að við erum með dagskrá næstu 5 helgar. Já, það er svo lítið hægt að gera þegar maður býr úti á landi. NOT. Næsta helgi : Matarklúbbur. Önnur helgi: KÖBEN. Þriðja helgin: Æfingarferð á Patró með karlakórnum. Fjórða helgin: Afmæli hjá Ásthildi. Fimmta helgin: Þá koma Patrónurnar okkar.
Jæja þá er best að koma sér fram úr rúminu og skella sér í sturtu og gera sig sætan fyrir karlinn.
Luv you all.
Vetur komdu.Katrín Líney Jónsdóttir
Christ. Eins og mann hlakkar alltaf til að það komi sumar þá er ég orðin þreytt á því núna. Hvenær verður dauður tími í mínu lífi. Mig langar svo í rólega daga sem ég vakna og hugsa "Hvað á ég nú að gera í dag, kannski bara ekki neitt". Þetta sumar er búið að vera algjört brjálæði, en rosalega skemmtilegt. Batteríin mín eru bara búin. Langar að liggja heiladauð yfir einhverjum myndum og gera ekkert. Veit nú reyndar ég myndi endast í því í svona 5 tíma og svo rokin af stað í einhverja vitleysu. he he he he. Ég er að fara í Grunnavík yfir helgina með alla fjölskylduna og góðum vinum. Það verður örugglega hrikalega gaman. Ég er búin að vera svo andlaus síðan ég kom heim af Hornströndum(hefði viljað flytja þangað)þess vegna hef ég ekkert skrifað. Verið að vinna mikið og Kjóllinn er enn ekki kominn. Bíð spennt á hverjum degi eftir tilkynningu um að hann sé kominn. Hringdi heim. Hann er víst kominn. Bæ bæ er fara að ná í hann.Heima er gott að vera.Katrín Líney Jónsdóttir
Þá er maður kominn heim eftir mikla ævintýraferð. Upphaf ferðarinnar var heldur skrautlegt þar sem það var komið dálítið rok seinnipartinn á mánudeginum en við Dóri ákváðum að leggja af stað og sjá svo til. Það var síðan bara rjómablíða alla leiðina og við vorum bara 1 1/2 tíma í Hrafnfjörð. Þá var málið að koma tuðrunni í gang og var það reynt í rúman klukkutíma og ekkert gekk, he hehe . Þannig að það endaði á því að Dóri réri með mig í land. Ég lagði svo af stað á Bolungarvíkurheiðina um kl.21. Veðrið var frábært og mín bara á stuttbuxum og bol. Gangan gekk vel upp og svo þegar ég var komin yfir þá mætti ég mínum heitt elskaða sem gekk til móts við mig. OH hann er svo sætur. Við vorum svo komin kl. 00:30 til Bolungarvíkur. Daginn eftir hitti ég allan hópinn og allir sögðu "Varstu að ganga þetta ein". Hópurinn og við gengum svo til Reykjafjarðar og höfðum það huggulegt, fórum í laugina og pottinn. Á fimmtudeginum þurfti Óli að fara til Hornvíkur aftur og lagði af stað um kl 06. Ég fann að ég saknaði hans strax og lagði sjálf af stað um kl.11. Fyrir þá sem ekki þekkja er þetta 2-3 daga leið að fara frá Reykjafirði til Hornvíkur. Veðrið var geggja og aftur var ég á stuttbuxum og bol. Ég ákvað að hafa smá umbunarkerfi í gangi til hvatningar á leiðinni. Gekk yfir fyrsta hálsinn og fékk mér þá Öl og tyggjó, eftir Svartaskarð aftur Öl og tyggjó. Svo kom ég til Bolungarvíkur og var orðin mikið þreytt, hafði gengið í 5 klst., og hafði hugsað mér að gista þar um nóttina og halda áfram daginn eftir. Þá var ég svo heppin að Sissa hringdi í Reimar son sinn sem var akkúrat að sigla framhjá og hann tók mig uppí og fór ég með honum til Látrarvíkur. Þaðan gekk ég til Hornvíkur. Sem sagt komst alla leið á einum degi. Í Hornvíkinni hitti ég nýja hópinn og allir alveg steinhissa að sjá mig. Óli hafði komið til Hornvíkur 2 tímum áður en ég. Hann var alveg búinn enda hafði hann gengið í 11 klst. Við áttum síðan ágætist tíma í Hornvíkinni en það var brjálað veður frá föstudagskvöldi til sunnudagsmorguns og því lítið hægt að ganga. Svo gengum við frá Hornvíkinni, yfir Hafnarskarð , til Veiðuleysufjarðar. Þaðan silgdum við heim. Úff, var maður þreyttur. Við chilluðum á mánudaginn og svo vaknaði ég með hvílíkar kvalir í kviðnum á þriðjudagsmorgninum og fór beint uppá FSÍ og var kíkt á mig. Ég fór svo heim með kvalirnar þeim linnti ekki fyrr en í nótt. Er núna með mikla ógleði en ætla að komast út úr húsi á morgun og vinnuna. Úff, þetta er nú meiri langlokan. Sí jú leiter.HornstrandirKatrín Líney Jónsdóttir
Úff, úff, jæja.
Loksins, loksins fer ég á Hornstrandir. Ég fer á morgun í Hrafnsfjörð og geng yfir í Bolungavík og þar hitti ég minn ekta mann ásamt fríðu föruneyti hans. Við munum svo dvelja þar fram á sunnudag. Þ.e. á Hornströndum. Við leiðsegjum þennan hóp fram á fimmtudag og svo þurfum við að hlaupa úr Reykjafirði til Hornvíkur þann dag. Það er ekki hægt að hugsa sér betri leið til þess að koma sér í form. Ég er búin að vera í kasti í dag að gera allt klárt fyrir tengdó sem ætlar að vera heima með börnin meðan við erum í burtu. Eins og þeir sem þekkja mig vita að ég er dulítið ýkt. T.d. ákvað ég að taka smá til áður en tengdó kæmi og fór smá fram úr sjálfri mér og hreinsaði út úr skápunum hjá unglingunum, ja svona c.a. 3 ruslapoka af fötum og drasli. Jæja, núna kalla önnur verkefni á mig, eins og að mæla mig í bak og fyrir til að senda vegna kjólsins. hí hí hí hí hí. Það verður sko tekið stíft mál. Bye bye babys bye bye.
Blogga næst þegar ég kem tilbage.
Sumarfrí, það jafnast ekkert á við sumarfrí.Katrín Líney Jónsdóttir
Halló, halló.Það er greinilegt að ég ætla að verða heimsins lélegasti bloggari í heimi. He he. Eins og allir vita þá gerist akkúrat ekkert hjá mér eins og vanalega. Það tekur því varla að koma því í blogg. Nei,bara að grínast. Síðasta vika hófst með venjulegum vinnudegi og þegar heim var komið var mér snarað í nýja bátinn okkar og siglt á Hesteyri. Það hlaut að koma að því að ég kæmist á Hornstrandarfriðlandi. Við hittum þar okkar ástkæru Pálínu og grilluðum mat með henni og mömmu hennar. Og svo var siglt heim. Næstu dagar fóru svo í vinnu og líkamsrækt. Svo tók við hörku líkams- og drykkjurækt. ÍHAAAA. Finnbogi frændi(bróðir mömmu), Kolla, konan hans og Tinna, dóttir þeirra, voru hjá okkur alla helgina. Við tókum því rólega á föstudagskvöldið því það var stefnt á að fara til Ögurs á ball á laugardagskvöldinu. Annars fórum við Óli í frábært matarboð á föstudagskvöldinu með hóp sem Óli var að guida á laugardeginum. Svo var öllu kúvent á laugardeginum. Í staðinn fyrir Ögur var farið í geggjað partý niðri í bæ. Held þegar mest var þá hafi verið 70 manns og líka Ljótu Hálfvitarnir. Það var djammað til kl. 07 á sunnudagsmorgninum. Sunnudagurinn var humm já, eins og þið ímyndið ykkur, dulítið slappur en við fórum samt í góðan ökutúr með gestunum. Þegar þau voru farin þá var rennt inn í Heydal með stóra soninn í vist. Gistum þar á bæ hjá henni yndislegu Stellu. Það er svo margt hægt að gera þar. Við fórum í heitu laugina, berjamó, hestbak, göngutúra og í aðra heita laug. Komum svo dauðþreytt í gærkveldi heim og tjölduðum fyrir krakkana og höfðum svo kósý. Jæja, þetta er ágætt í bili. Adios mi amigos.
P.S. Búin að kaupa brúðarkjólinn. hí hí hí
Home sweet homeKatrín Líney Jónsdóttir
Jæja, komin heim :-).Þessi helgi var alveg yndisleg. Við fórum strax eftir vinnu til Bíldudals og rétt mörðum að vera á réttum tíma í undanúrslitin á Héraðsmótinu. Óla, Ingvari, Sögu og Eddu Sól gekk alveg frábærlega vel. Það er nú önnur saga að segja um sjálfa mig. Ég er svo dugleg að láta plata mig út í allskonar vitleysu t.d. eins og að keppa í 100 m. hlaupi. Og þar sem ég er nú dáldið búttuð þá kom ég síðust í mark. he he he. Á laugardaginn var ég bara að snúllast með litlu strákana á Patró meðan Óli og börnin fóru að keppa. Í dag gerði svo eitt sem mig hefur alltaf langað til að gera. Ég gekk á Brellur fyrir ofan Patró og var í 2,5 tíma. Veðrið var æðislegt og þetta er sko toppurinn á tilverunni, að standa á fjallstoppi í svona veðri. Fjölskyldan kom svo heim með 5 gull, 5 silfur og 2 brons eftir mótið. Geri aðrir betur. Jæja ætla ekki að hafa þetta lengra. Ætla að fara að knúsa karlinn minn.
PATREKSFJÖRÐUR... here I com.Katrín Líney Jónsdóttir
Jæja. Nú á að kíkja á æskuslóðirnar um helgina. Reynar er helmingurinn af fjölskyldunni að fara að taka þátt í Héraðsmótinu á Bíldudal. (Not my idea of fun). Djammpúkinn í mér segir" Komdu með mér á Sæluhelgi, sæluhelgi, sæluhelgi. Komdu með mér á sæluhelgi og taktu vinkonurnar þínar með". Er mikið að spá í að koma aftur heim á morgun og kíkja á Sæluhelgina. he he he heh. En það er nú alltaf gaman að kíkja "heim". Ætla að vera heilsusamleg og ganga á Múlann. Er í geðveiku átaki núna. Það er nú um að gera að nýta sér aðstöðuna sem ég á núna og hef því engar afsakanir lengur til að æfa EKKI. Er búin að vera rosalega dugleg í garðinum. Sá reyndar flotta garðálfa á netinu( voru hálfklæddir he heh ehe). Þeir voru kannski óviðeigandi í garðinn hjá mér þar sem ég á 100 börn. Jæja, hafði það gott í dag.Er byrjuð að blogga.Katrín Líney Jónsdóttir
Loksins loksins...
Kæru vinir og aðrir landsmenn. Hér með hef ég opnað bloggsíðuna mína.

